OC 12pokar Viking Organic

1.850 kr.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 8005520 Flokkar: , Merkimiðar: , , ,

Viking Tea Organic – 12 píramídalaga tepokar

Norræn blanda af svörtu og grænu tei, jurtum, blómum og ávöxtum

Viking Tea er lífræn teblanda sem sækir innblástur í gömul norræn hráefni og fjölbreytta náttúru Norðurlandanna.

Blandan inniheldur bæði svart og grænt te úr laufum teplöntunnar Camellia sinensis. Við teið er bætt vandlega völdum hráefnum á borð við eplabita, brenninetlu, hindber, rósaldin, fennel, lakkrísrót og blá kornblóm. Útkoman er mjúkt og bragðmikið te með mildri sýru og fjölbreyttum tónum úr norrænni náttúru.

Bragð

Mjúkt og örlítið sætt te með keim af eplum og hindberjum. Rósaldin gefa blöndunni milda sýru á meðan lakkrísrót, fennel, brenninetla og blá kornblóm bæta við notalegum jurtakeim.

Einstaklega ljúffengt te sem vekur hugrenningatengsl við strendur, engi og skóga Norðurlandanna.

Uppáhelling

Setjið einn tepoka í bolla og hellið um 80°C heitu vatni yfir. Látið teið standa í 3 mínútur. Þar sem blandan inniheldur bæði svart og grænt te getur hún orðið beisk ef vatnið er of heitt eða teið látið standa of lengi.

Umbúðir

Í öskjunni eru 12 píramídalaga tepokar. Tepokarnir eru gerðir úr PLA, jurtabundnu og lífbrjótanlegu efni.

Vörukarfa