2% Salisýlsýra. Fyrir blandaða og feita húð.
Mjög sterk upplausn af Salisýlsýru sem ræðst gegn bólum í grunninn.
Varan inniheldur einnig glycolic sýru sem hjálpar til við að losa húðina við dauðar húðflögur og börk af Silkivíði (e. White Willow Bark) sem þekktur er fyrir verkjastillandi og bólgueyðandi eiginleika.
Extract úr Hvítasunnulilju hjálpar til við að gera ásýnd húðarinnar léttari og bjartari og svo minnkar pirringur yfir bólum til muna, þegar þú ferð út í daginn eða út að gera þér glaðan dag, enda sýna ummæli á netinu að varan fær yfirleitt mjög góða dóma.
Acure vörurnar eru unnar úr jurtum og náttúrulegri fæðu, innihaldsefnin eru lífræn, kjarnaolíurnar eru hreinar og umbúðirnar eru vistvænar. Í vörurnar fer bara það besta.
Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.